Ratleikur

Liðið sem var í 1.sæti - Almar, Andri, Haraldur, Arna, Hekla
Liðið sem var í 1.sæti - Almar, Andri, Haraldur, Arna, Hekla

Á mánudaginn var fóru nemendur mið- og unglingastigs í skemmtilegan ratleik um Skagaströnd. Hópnum var skipt í 5 lið á hvoru stigi og þurftu liðin að leysa ýmsar þrautir sem reyndu á samvinnu, útsjónarsemi og þrautseigju. Að auki mátti taka þátt í ýmsum aukaþrautum til að safna stigum, svo sem að syngja á almannafæri, fá fullorðinn til að standa á haus og gera góðverk.  Hóparnir skiluðu inn lausnum og myndum og myndböndum af afrekum dagsins og hér má sjá samantekt sem Sara Diljá vann.  Þar sem þetta var keppni þurfti að úrskurða sigurvegara og þeir voru á miðstigi Þórunn Ósk, Sólveig Erla, Helga Margrét, Hugrún Antonía og Anna Marie.  Á unglingastigi sigruðu Almar Atli, Andri Már, Haraldur Bjarki, Arna Rún og Hekla Guðrún.

Við þökkum bæjarbúum fyrir þeirra þátttöku.