Ávaxtastund

Ávextir og grænmeti eru ávallt í boði fyrir alla í Höfðaskóla á miðvikudögum, nemendum að kostnaðarlausu.  Krakkarnir eru mjög ánægð með fjölbreytnina og eru hvött til að smakka á öllum ávöxtum og grænmeti sem þeim er framandi.

Við vorum svo heppin að fá úthlutaðan 50.000 króna styrk frá Kjörbúðinni til kaupa á ávöxtum og grænmeti. Við þökkum Kjörbúðinni kærlega fyrir þennan góða stuðning

Myndir hér