Heil og sæl
Vikan hefur gengið vel og margt verið brallað. Nemendur eru allir að komast í góða rútínu eftir sumarfrí og margt spennandi framundan.
Mörg skemmtileg verkefni í öllum bekkjum skólans eru nú í vinnslu og við minnum á að foreldrar/forráðamenn eru alltaf velkomnir í heimsókn, ef þeir vilja koma við og sjá það sem nemendur eru að fást við hverju sinni.
Í næstu viku verður viðtalsdagur fimmtudaginn 12.sept þar sem foreldrar/forráðamenn fá tækifæri til að ræða við umsjónarkennara barna sinna, setja línurnar fyrir veturinn og stilla saman strengi. Opnað verður fyrir skráningar í viðtöl kl. 15:00 mánudaginn 9.sept.
Við minnum á hafragrautinn góða sem Haddý töfrar fram frá kl. 7:45-8:30, ásamt ávöxtum og grænmeti í morgunkaffinu.
Nú ætla margir upp um fjöll og firnindi um helgina að elta sauðfé, við vonum að þeir sem í það fara hafi gaman af og fari gætilega.
Við vonum að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjum
Sara Diljá og Guðrún Elsa