Föstudagskveðja

Heil og sæl 

Þá eru einungis tvær vikur eftir af skólaárinu. Veðrið leikur við okkur og nemendur byrja á námsmatsverkefnum sínum í næstu viku. 
 
Nemendur í 10.bekk fóru í skólaferðalag í vikunni. Fóru meðal annars í rafting, hvalaskoðun og jarðböðin á Mývatni. Ferðalangar fengu dásamlegt veður og komu endurnærð til baka. 
 
Þar sem mikið verður um útivist næstkomandi tvær vikur væri gott ef foreldrar myndu bera sólarvörn að morgni á börnin svo þau komi ekki heim brunnin. 
 
Við vonum að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjum
Sara Diljá og Guðrún Elsa