Föstudagskveðja

Heil og sæl

Vikan var svo sannarlega stutt hjá okkur, aðeins tveir skóladagar eftir gott vetrarfrí. Í gær gengum við mílu umburðarlyndis en myndir og frétt frá því má sjá hér. 

Það er ýmislegt framundan hjá okkur í nóvember áður en jólagleðin tekur við í desember. Dagur íslenskrar tungu er í næstu viku og þá setjum við undirbúning fyrir framsagnarkeppnina okkar af stað, þá eru stigsskemmtanir og list- og verkgreina vika unglingastigs einnig í nóvember. 

Í næstu viku ætla nemendur í hestavali að fara í heimsókn að Hólum með Höllu Maríu.
 
Í Höfðaskóla er margt skemmtilegt um að vera og við hvetjum ykkur til að kíkja við hjá okkur ef þið viljið fræðast um starfið okkar eða sjá hvað nemendur eru að kljást við. Skólinn er hjartað í samfélaginu og við eigum að standa sameiginlega vörð um hann og hafa umræðu um skólamál jákvæða og uppbyggilega. 
 
Við vonum að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjum
Sara Diljá og Guðrún Elsa