Heimsókn á yngsta stig

Yngsta stig fékk óvænta heimsókn í vikunni, það var hann Snjálfur jólaálfur. Hann er mjög uppátækjasamur og hefur gert hina og þessa hluti og falið sig á ólíklegustu stöðum. Mikil gleði og spenna hefur verið í nemendahópnum vegna heimsóknar hans. Snjálf má þó ekki snerta, þá missir hann töframáttinn. Hann varð fyrir því óláni að verða snertur og hvarf þá um stundarsakir. Upphófst þá mikill grátur og mikil sorg, hann var fljótur að jafna sig og birtist aftur í mikla gleði og fagnarðlæti.
 
Bestu kveðjur nemendur og starfsfólk yngsta stigs.