Heimsókn jólasveina

Þessir fögru jólasveinabræður skelltu sér til byggða í dag.  Þegar þeir sáu mannlausa skólalóðina ákváðu þeir að álagsprófa leiktækin.  Tækin stóðust álagið og vakti þetta uppátæki mikinn fögnuð nemenda Höfðaskóla sem stóðu út í glugga og fylgdust með hamaganginum.