Í skólabyrjun

Sæl kæru foreldrar/forráðamenn

Í ljósi aðstæðna og samkomutakmarkana í samfélaginu verður skólasetning Höfðaskóla fyrir skólaárið 2020-2021 með öðru sniði en undanfarin ár. Nemendur mæta nú beint í skólann en ekki í kirkjuna eins og áður og mikilvægt er að aðeins annað foreldrið eða annar forráðamaðurinn fylgi hverju/m barni/systkinum.

Í haust eru skráðir 78 nemendur í Höfðaskóla sem er fækkun milli ára. Við höldum óbreyttum dagafjölda en skóladagar skólaársins 2020-2021 verða 175 talsins.

Nokkrar breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi síðan á síðasta skólaári. Bæði hafa einhverjir sagt upp störfum og aðrir fært sig til innan skólans. Helena Rán Þorsteinsdóttir hefur látið af störfum hjá okkur en við njótum áfram góðs af hæfni hennar í tónlistarskólanum. Elva Þórisdóttir er í námsleyfi og S. Agnes Sævarsdóttir er einnig í leyfi. Fjóla Dögg Björnsdóttir er í barneignarleyfi.

Halla María Þórðardóttir er komin til starfa hjá okkur í kennslu sem og Ásdís Ýr Arnardóttir. Erna Ósk Guðnadóttir og Ílóna Sif Ásgeirsdóttir eru starfsmenn frístundunar. Þá hefur Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir hafið störf hjá okkur sem stuðningsfulltrúi og leiðbeinandi í myndmennt. Hallfríður Ósk Óladóttir var ráðin skólaliði.

Í ár verður 1.-2. bekk kennt saman og þar verður Erna Berglind umsjónarkennari og Eva Dís stuðningsfulltrúi. Í 3. og 4. bekk verða Inga Jóna og Vigdís Elva umsjónarkennarar og Kristbjörg Dúfa og Svenny stuðningsfulltrúar.

Í 5.-7. bekk fara Gigga og Halla María með umsjón. Svenny kemur einnig að stuðning á miðstigi.

Í 8.-10. bekk verða Ásdís Ýr og Dagný Rósa með umsjón og Sigurður Heiðarr kemur þar einnig að kennslu ásamt því að sjá um bókasafnið. Lilja Dögg verður þar stuðningsfulltrúi.

Í sérdeildinni verða þær Berglind Rós og Ástrós Villa. Ástrós Elísdóttir mun sjá áfram um kórstarfið og leiklistina. Ólafur Bernódusson er áfram námsráðgjafi og Sigríður Stefánsdóttir skólahjúkrunarfræðingur.

Frístund verður starfrækt með sama sniði og undanfarin ár. Hún er í boði fyrir nemendur 1.-4.bekkja, eftir að venjulegum skóladegi lýkur. Í ár mun frístundin færa sig um set og verður með aðstöðu í húsnæði félagsmiðstöðvar. Fyrst um sinn meðan klárað er að undirbúa húsnæðið verða frístund í skólanum.

Starfsmenn í Frístund verða Erna Ósk og Ílóna Sif. Forráðamenn munu fá umsóknareyðublöð um Frístund hjá umsjónarkennurum.

Mötuneytismál verða með sama sniði og í fyrra. Foreldrar geta nú skráð börnin sín í mat á þar til gerðu eyðublaði á heimasíðu skólans. Ekki verður gerð krafa um lágmarksskráningu (hægt að skrá sig á einn dag þess vegna).
Skráning þarf að berast fyrir lok næstu viku. Ef þið viljið breyta eða segja upp áskrift eftir að skráningartíma lýkur er það gert hjá Jóhönnu Sigurjóns á hrepp skrifstofunni.

Við munum halda áfram að bjóða upp á hafragraut á morgnana áður en kennsla hefst og verður hann í boði strax á morgun, frá kl. 7:45.

Sund verður áfram kennt tvo morgna í viku, mánudaga og þriðjudaga. Á meðan vel viðrar er í boði að hjóla í sund en annars mun Kiddi sjá um akstur til og frá sundlaug. Það er skylda að nota hjálma þegar hjól eru notuð. Akstur rafknúinna tækja, t.d. letibretta, rafmagnshlaupahjóla og vespa er bannaður á skólalóð. Nemendur mega þó nota þessi tæki til að koma sér til og frá skóla en að öðru leiti skulu þau látin ósnert á skólatíma.

Skólasetning verður sem hér segir:

Yngsta stig - mánudaginn 24. ágúst 2020 kl. 9:00
Miðstig - mánudaginn 24. ágúst 2020 kl. 10:00
Unglingastig - mánudaginn 24. ágúst 2020 kl. 11:00

Ég minni aftur á að aðeins einn fylgi nemendum á skólasetningu og sami aðili fylgi systkinum.

Ég óska ykkur öllum velfarnaðar á nýju skólaári.
Ég hlakka til að vinna með ykkur í vetur.
Skólaárið 2020-2021 hefst mánudaginn 24. ágúst 2020 og þar með er skóli settur :)

Kær kveðja
Sara Diljá
skólastjóri