Jólatré

Tveir fulltrúar fyrsta bekkjar í Höfðaskóla þau Helgi Karl Baldursson og Snædís Stefanía Davíðsdóttir sáu að þessu sinni um að tendra ljósin á jólatré okkar Skagstrendinga á Hnappataðatúni.  Nemendur yngsta stigs dönsuðu svo í kringum jólatréð og sungu jólalög.  Allir fengu svo heitt kakó og piparkökur uppí skóla að athöfn lokinni. 

Fleiri myndir hér