Margt smátt gerir eitt stórt!

Lestrarkeppnin, Samrómur, sem skólinn er að taka þátt í er á milli grunnskóla landsins og er haldin í þriðja sinn inni á https://samromur.is/takathatt þar sem keppt er um fjölda setninga sem lesnar eru inn í Samróm. Forseti Íslands setti keppnina formlega 20.janúar. Keppninni lýkur á miðnætti 26. janúar. 
 
Höfðaskóli tekur þátt í ár eins og í fyrra. Þessi keppni er hinsvegar ekki bara fyrir nemendur heldur geta allir, ungir sem aldnir, lagt hönd á plóg og skráð sig til leiks inn í Höfðaskólahópinn og lesið.
Það er síðan framlag hópsins sem telur og eru vegleg verðlaun fyrir þann skóla sem les mest. 
 
Nemendur skólans lesa og lesa, standa sig gríðarlega vel og er skólinn, þegar þetta er skrifað, í öðru sæti í C flokki. Einnig hafa foreldrar og velunnarar skólans tekið mjög virkan þátt.