Öskudagur 2022

Öskudagur 2022

Í ljósi þess hversu margir af yngstu kynslóðinni eru nú smitaðir af covid leggjum við í Höfðaskóla ásamt foreldrafélagi skólans til að öskudeginum verði frestað um eina viku svo að fleiri geti tekið þátt í gleðinni. 

Við vonumst til að samstaða sé um það í samfélaginu okkar og að fyrirtæki séu tilbúin til að taka á móti syngjandi börnum miðvikudaginn 9. mars 2022. 

Öskudagsskemmtun foreldrafélagsins verður einnig þann dag, nánar auglýst síðar. 

Sjáumst (vonandi :)) syngjandi kát, viku á eftir áætlun og leyfum með því fleirum að taka þátt í þessum skemmtilega degi.