Nemendur í valgreininni skólablað eru að leggja lokahönd á blaðið sem á að koma út fyrir jólin. Í blaðinu verða ýmis viðtöl og var draumurinn að fá að taka viðtal við Herra Hnetusmjör. Eftir tölvupóstsendingar milli kennara og Herra var niðurstaðan sú að hann hitti þau óvænt í myndsímtali í dag þar sem þau spurðu hann spurninga. Það var mikil gleði þegar herra birtist á skjánum.
Við þökkum honum kærlega fyrir að gefa sér tíma til að tala við hópinn, þau munu muna eftir þessari stund lengi :)
Höfðaskóli |
Íþróttahús |
Tónlistarskóli
Ábendingar og fyrirspurnir |