Prjónagleði

Höfðaskóli tekur þátt í verkefni í samvinnu við Textílsetrið.  Markmið verkefnisins er að auka þekkingu og innsýn nemenda í hversu samofin ullin og prjónaskapur er þjóðararfi og sögu landsins. 

Nemendur prjóna í kennslustundum og frímínútum bæði í kennslustofum og á göngum skólans.  Í verkið er notast við ull í fánalitunum og eru prjónaðir ca 20x20cm bútar og verða þeir svo settir saman í teppi.  Allir bekkir koma að einhverju leyti að verkefninu.  Verkið verður sýnt á Prjónagleði 2018 sem haldin er á Blönduósi og síðan mun það prýða súlu í Leifstöð. 

Jóhanna Pálmadóttir forstöðumaður Textílsetursins heimsótti nemendur í 4.-10. bekk og þar með hófst verkefnið formlega.