Skráning í frístund

Frístundaver Höfðaskóla er opin öllum nemendum í 1.– 4. bekk skólans.

Opnunartími til 16:00 alla virka daga.

Greitt er fyrir frístund eftir gildandi gjaldskrá hjá sveitarfélaginu, en öllum nemendum í 1.-4.bekk stendur til boða að vera gjaldfrjálst í frístund til 1.sept 2021.

Frístund er staðsett í skólabyggingunni. Starfsfólk fer með börnin í hádegismat, sinnir gæslu þar og fylgja þeim svo aftur til baka í frístundahúsnæðið. Séð er til þess að börn sem eiga að sækja íþróttir, sem eru á vegum Fram, geri það, og að þau börn sem stunda tónlistarnám á tíma frístundar geri það samviskusamlega. 

Starfsemi frístundar miðast við skólaárið eins og það er hverju sinni og kemur fram á skóladagatali. 

Starfsfólk frístundar skólaárið 2021-2022 verða Erna Ósk og Judith Maria.

Hér er hægt að skrá nemendur í frístund.