Fréttir

Skólabyrjun

Senn líður að skólabyrjun og verður skólasetning með sama hætti og undanfarin ár. Skólasetning fyrir skólaárið 2023-2024 fer fram fimmtudaginn 24. ágúst 2023. Nemendur mæta beint í skólann í sínar heimastofur í fylgd með foreldrum/forráðamönnum. Breyting hefur orðið á hvernig hópum er skipt en eru skiptingar og tímasetningar sem hér segir: 9:00 - 1.-3. bekkur í stofum á neðri hæð. 9:30 - 4. og 5. bekkur í miðstigs stofum á efri hæð. 10:00 - 6. og 7. bekkur í miðstigs stofum á efri hæð. 10:30 - 8.-10. bekkur í unglingastigs stofum á efri hæð. Í haust eru skráðir 66 nemendur Í Höfðaskóla og verða skóladagar 175 talsins. Eins og oft vill verða að hausti hafa orðið mannabreytingar í skólanum. Inga Jóna Sveinsdóttir er hætt störfum og Ásdís Ýr Arnardóttir og Kristín Kristmundsdóttir eru farnar í leyfi. Berglind Hlín Baldursdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri sérkennslu, Gísli Ragnarsson kennari á mið- og unglingastigi og Sandra Ómarsdóttir tekur við bókasafninu. Umsjónarkennarar í ár verða: 1. bekkur - Halla María Þórðardóttir 2.-3. bekkur - Fjóla Dögg Björnsdóttir 4.-5. bekkur - Þorgerður Þóra Hlynsdóttir 6.-7. bekkur - Dagný Rósa Úlfarsdóttir og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir 8.-10. bekkur - Elva Þórisdóttir og Dagný Rósa Úlfarsdóttir Frístund verður starfrækt eins og undanfarin ár og er hún í boði fyrir nemendur yngsta stigs (1.-4. bekk) eftir að kennslu lýkur á daginn. Starfsmenn frístundar verða áfram þær Daniela Esme og Erna Ósk. Frístund verður í boði fyrir alla nemendur yngsta stigs, endurgjaldslaust, út ágúst en eftir það hafa aðeins skráðir nemendur aðgang. Skráning fer fram hér. Mötuneytið verður áfram rekið af sveitarfélaginu og munu nemendur borða í Fellsborg. Matráður verður Daniela Esme og henni til aðstoðar Kristín Þórhallsdóttir. Skráning fer fram hér. Ef gera þarf breytingu á skráningu nemenda eftir að skóli hefst skal senda óskir um þær á skagastrond@skagastrond.is Sund verður kennt á mánu- og þriðjudögum í ágúst, september, október, mars, apríl og maí. Nemendur labba eða hjóla í sund meðan veður leyfir að undanskyldum nemendum 1. bekkjar en þeim verður keyrt í og úr sundi. Hafragrauturinn góði verður í boði alla virka morgna og ávaxta stundin verður áfram á miðvikudögum. Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna, við erum hér fyrir ykkur. Skólaárið 2023-2024 hefst 24. ágúst 2023 og þar með segi ég Höfðaskóla settan. Kær kveðja Sara Diljá skólastjóri
Lesa meira

Húsvörður óskast

Húsvörður óskast til starfa í 50% starf við Höfðaskóla á Skagaströnd. Vinnutími frá 12:15-16:15 Ráðið er í starfið frá 1. september 2023. Möguleiki er á hærra starfshlutfalli í öðrum deildum skólans samhliða húsvarðarstöðu. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Allar upplýsingar um skólann má nálgast á www.hofdaskoli.is
Lesa meira

Skóladagatal veturinn 2023-2024

Skóladagatal 2023-2024 er hægt að nálgast hér.
Lesa meira

Síðasta föstudagskveðjan fyrir sumarfrí

Sæl öll Þá er síðasta skóladeginum lokið og nemendur komnir í sumarfrí. Dagurinn í dag var einstaklega skemmtilegur, nemendur voru úti á allskyns stöðvum, fóru í loftbolta, við fengum heimsókn frá lögreglunni sem skoðaði hjól nemenda og við enduðum svo á pylsugrilli þar sem var einnig boðið upp á krap. Foreldrafélagið kom að þessum degi með okkur og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Skólaslitin fara fram í Fellsborg kl. 17:00 í dag og vonumst við til að sjá sem flesta. Við þökkum fyrir skólaárið sem nú er liðið og vonum að þið hafið það gott í sumarfríinu. Kærar kveðjur Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Fjöruferð

Í dag fóru nemendur 1.-10.bekkjar út að Sandlæk. Fóru í blak, byggðu sandkastala og óðu í sjóinn. Á leiðinni aftur í skólann var stoppað og farði í leiki, allir tóku þátt og var gaman að sjá stóra sem smáa skemmta sér í leik og starfi.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Þá hefur síðasta heila vikan á skólaárinu runnið sitt skeið. Við hefðum alveg verið til í aðeins betra veður en við vonum það besta fyrir komandi viku, þar sem síðustu þrír skóladagarnir verða bæði úti og inni. Í næstu viku er frí á mánudag, á þriðjudag er hefðbundinn skóladagur, á miðvikudag er uppbrot fyrir hádegi og hefðbundin kennsla eftir hádegi. Á fimmtudag hefst dagskrá kl. 9:00. Skólinn opnar á sínum tíma en ekki verður hafragrautur í boði þann dag. Foreldrafélag skólans ætlar að taka þátt í morgninum með okkur og lýkur dagskrá með pylsugrilli í hádeginu. Frístund verður opin eftir hádegi og verða skólaslit Höfðaskóla svo haldin í Fellsborg kl. 17:00 þann dag. Nú brettum við öll upp ermar og klárum gott skólaár með stæl. Hlökkum til að sjá ykkur öll á skólaslitum, en þangað eru öll velkomin. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Skólaferðalag 10.bekkjar

Þann 7. maí lögðu nemendur 10. bekkjar af stað í langþráð skólaferðalag og var ferðinni heitið til Kaupmannahafnar. Gist var í Keflavík nóttina fyrir flug. Kaupmannahöfn tók síðan fallega á móti okkur með glampandi sól og notalegheitum að morgni 8. maí. Þegar búið var að koma sér fyrir á hótelinu var höfðinginn McDonalds heimsóttur. Þaðan gengum við svo á Strikið þar sem við skoðuðum Guinness World Records safnið og fórum í siglingu frá Nyhavn. Að lokinni siglingu var komin þreyta í mannskapinn svo við kíktum í matvörubúð og upp á hótel. Næsta dag byrjuðum við daginn í Metro og strætó til að komast í dýragarðinn. Þar fékk hver og einn að skoða með sínu nefi. Úr dýragarðinum fórum við í verslunarmiðstöðina Fields þar sem margir gerðu afbragðsgóð kaup. Það voru því þreyttar og lúnar tásur sem mættu á hótelið um kvöldið. Eftir smá hvíld var aftur skundað út og nú niður á Amager Strandpark sem var í göngufæri við hótelið okkar. Á ströndinni var leikið örlítið með blakbolta og horft yfir Ermasundið á brúna og Svíþjóð. Á þriðja degi voru augnlokin orðin örlítið þyngri í morgunsárið en dagana á undan. Allir voru þó mættir í morgunmat rúmlega 9. Við byrjuðum daginn í Rundetaarn sem er glæsilegur 35 metra hár turn, frá 17. öld. Við gerðum okkur “lítið” fyrir og skunduðum upp á topp þar sem útsýni er yfir alla borgina. Turninn var áður fyrr mikill vísinda- og rannsóknastaður sérstaklega í stjörnufræði. Frá turninum hèldum við sem leið lá um Kongens Nytorv að Amalienborg þar sem við sáum vaktaskipti lífvarða drottningar. Það var mikil upplifun að sjá. Frá Amalienborg gengum við um Nyhöfn niður Strikið að Rådhuspladsen og þaðan í Tivoligarðinn. Þar var mikið sprellað, hlegið og jafnvel smá tár sáust. Gríðarlega mikið fjör og við fylgdum ruslinu út þegar garðurinn lokaði kl 22. Við tók heimferð á hótelið, um miðborg Kaupmannahafnar. Það var öðruvísi upplifun en ferðast að degi til. Á fjórða og jafnfram síðasta deginum var byrjað á því að bóka okkur út af hótelinu og koma farangrinum í geymslu. Síðan var enn og aftur tekinn metro og nú á Christianshavn. Þaðan gengum við til Christianiu, það var sérstakt fyrir flesta að koma þangað en mjög rólegt var í fríríkinu enda vorum við þar snemma dags. Frá fríríkinu héldum við á Kongens Nytorv þar sem allir fengu frjálsan tíma á Strikinu. Sumir versluðu á meðan aðrir sátu í sólinni. Seinni partinn var svo farangurinn sóttur og haldið út á flugvöll. Það voru þreyttir en gríðarlega ánægðir nemendur og kennarar sem lentu svo á Íslandi um miðnætti þann 10. maí. Við erum öll sammála um að þetta hefur verið frábær ferð, þar sem allir sýndu sínar bestu hliðar og lærðu og upplifðu margt og merkilegt. Nemendum 10. bekkjar langar að þakka öllum sem styrktu þau í fjáröflun fyrir stuðninginn. Án ykkar stuðnings hefði þessi ferð ekki verið farin.
Lesa meira

Perlað af Krafti

Þriðjudaginn 16. maí s.l. fengum við í Höfðaskóla góða heimsókn frá starfskonum Krafts, styrktarfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra og héldum viðburðinn Perlað af krafti. Það má með sanni segja að það hafi gengið vel hjá okkur að perla armbönd en saman perluðum við 382 armbönd, sem gera 1.107.800 krónur fyrir Kraft ef þau seljast öll. Þar fyrir utan seldist varningur fyrir 250.830 krónur. Við þökkum öllum þeim sem sáu sér fært um að mæta fyrir komuna, það hefði verið gaman að sjá fleiri andlit en vonandi verður betri mæting næst, þar sem við stefnum að því að halda svona viðburð aftur síðar. Vel gert Höfðaskóli :)
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Góð vika að baki í Höfðaskóla. Við fengum góða heimsókn frá Siggu Dögg kynfræðing í heimsókn s.l. mánudag sem hélt fyrirlestur fyrir unglingana og var með foreldrafræðslu. Á þriðjudaginn var svo perlað af krafti sem gekk vel. Nánari frétt um það kemur í næstu viku. Það sem af er ári hefur ýmislegt verið í boði fyrir foreldra/forráðamenn að mæta á og efla þannig samvinnu heimilis og skóla. Foreldrar/forráðamenn spila ekki síður en skólinn stórt hlutverk í því að skapa á Skagaströnd gott skólasamfélag og hluti af því er að taka þátt í viðburðum á vegum skólans, mæting foreldra skiptir gríðarlega miklu máli. Á þeim skapast vettvangur fyrir fólk til þess að hittast, skiptast á skoðunum, fá fræðslu og hafa áhrif. Við hvetjum öll þau sem eiga börn í Höfðaskóla til að skoða hvort ekki sé svigrúm til að mæta þegar viðburðir eru auglýstir og taka þátt í þeim þætti skólagöngu barna sinna. Í næstu viku er síðasta heila skólavikan fyrir sumarfrí, námsmat er í fullum gangi og verið að ljúka þeim verkefnum sem þarf að klára fyrir frí. Eftir daginn í dag eru aðeins átta skóladagar eftir, en skólaslit Höfðaskóla fara fram í Fellsborg, fimmtudaginn 1. júní kl. 17:00. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Íþróttadagur miðstigs á Hvammstanga

Nemendur á miðstigi lögðu land undir fót annan daginn í þessari viku. Förinni var nú heitið á Hvammstanga þar sem nemendur 5.-7.bekkjar úr Austur- og Vestur Húnavatnssýslu hittust og prufuðu sig áfram í hinum ýmsu íþróttagreinum. Meðfylgjandi eru myndir af nemendum sem kynntu sér pílukast af miklum móð.
Lesa meira