Fréttir

Míla umburðarlyndis

Í dag gengur nemendur og starfsfólk skólans ásamt nokkrum góðum gestum eina mílu í tilefni af degi umburðarlyndis. Leiðtogi göngunnar í ár var Sæþór Daði Guðmundsson sem fór fyrir hópnum. Kalt var í veðri en gangan gekk engu að síður vel og nutu allir útiverunnar. Við þökkum þeim sem slóust í för með okkur kærlega fyrir gönguferðina, það skiptir okkur miklu máli þegar samfélagið tekur þátt í viðburðum sem skólinn stendur fyrir. Við vonum að gönguferðin ,,míla umburðarlyndis" sé komin til að vera á degi umburðarlyndis ár hvert.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Vikan í Höfðaskóla flaug áfram, veðrið var stillt og kalt og nemendur nutu þess að vera úti. 9. og 10. bekkur fór ásamt Elvu umsjónarkennara í heimsókn í MA og VMA þar sem þau kynntust námsframboði og skoðuðu heimavistina. Það var ekki annað að heyra en að nemendur hafi verið sáttir og voru þau til mikillar fyrirmyndar í þessari ferð. Skáld í skólum heimsóttu nemendur í 5.-7. bekk en sjá má frétt og myndir frá þeirri heimsókn hér. Nemendur í 1.-3. bekk máluðu sig í tilefni af hrekkjavöku og voru ýmsar furðuverur á sveimi um skólann þann dag. Myndir hér. Þó veðrið sé gott er myrkrið svart og alltof algengt er að bæði fullorðnir og börn séu án endurskinsmerkja. Við biðlum kæru foreldrar, að vera fyrirmyndir, ganga með endurskinsmerki og gæta þess vel að börnin sjáist í myrkrinu, að fatnaður sé með endurskini að framan og aftan og ekki má gleyma að setja merki á töskur barnanna líka. Í leiðinni skulum við öll sem samfélag taka okkur saman og gæta að umferðarhraða, skafa rúðurnar vel þegar frostið bítur á þær og virða það að stöðva fyrir gangandi vegfarendum. Nú er framundan vetrarfrí í Höfðaskóla mánu-, þriðju- og miðvikudag og kennsla hefst aftur fimmtudaginn 9. nóvember. Þann dag ætlum við að halda upp á dag umburðarlyndis, fræðast og ganga saman eina mílu sem fengið hefur titilinn míla umburðarlyndis. Öll sem vilja labba með okkur eru velkomin en farið verður frá Höfðaskóla kl. 10:00. 9. 10. og 13. nóvember verður kennaranemi í heimsókn hjá okkur en foreldrar/forráðamenn hafa fengið upplýsingar um það í tölvupósti. Við vonum að þið njótið þess einkar vel að vera í vetrarfríi Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa Með góðri kveðju
Lesa meira

Hrekkjavaka

Nemendur í 1.-3.bekk fengu andlitsmálningu frá förðunarvali unglingastigs í gærmorgun, hinar ýmsu kynjaverur voru á stjái og nemendur skemmtu sér konunglega.
Lesa meira

Skáld í skólum

Höfundamiðstöð RSÍ býður grunnskólum á hverju ári upp á bókmenntadagskrár undir nafninu Skáld í skólum þar sem höfundar heimsækja skólana til að fjalla um bókmenntir af ýmsu tagi. Dagskrárnar eru metnaðarfullar, skemmtilegar og fræðandi. Höfundar koma tala um sögur, bækur, lestur, sköpun og skrif, ævintýri sögupersóna jafnt sem skapara þeirra – með það að markmiði að smita nemendur af ólæknandi lestrar- og sköpunargleði. Nemendur á miðstigi fengu heimsókn frá þeim Gunnari Theodór Eggertssyni og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur sem skrifa skemmtilegar bækur um erfiða hluti. Í bókum Gunnars má finna hrörálfa og steinskrímsli, þar deyja bæði menn og dýr og stundum verður m.a.s. heimsendir! Bækur Bergrúnar taka á einelti, heimilisofbeldi, ástarsorg og börnum er jafnvel rænt! En má skrifa barnabækur um hvað sem er og þarf alltaf að vera vondi kall? Skemmtileg heimsókn og þökkum við kærlega fyrir.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur og var þessi vika engin undantekning. Nemendur í 4. og 5. bekk buðu aðstandendum og öllum nemendum skólans á sýningu á víkingaverkefni sem þau hafa verið að vinna undanfarna daga. Þau teiknuðu og skreyttu myndir ásamt því að búa til rafbækur sem tengdist víkingum og lífi þeirra. Í dag er svo alþjóðlegi bangsadagurinn og voru nokkrir auka nemendur í skólanum í dag af ýmsum stærðum og gerðum :) Í næstu viku fá nemendur í 5.-7. bekk heimsókn frá skáld í skólum sem verður eflaust mjög skemmtilegt. Hrekkjavakan verður svo haldin hátíðleg á Skagaströnd á þriðjudaginn í næstu viku en skólahald verður þó með hefðbundnum hætti þann dag. Næsta vika er síðasta heila vikan okkar fyrir vetrarfrí og verður án efa nóg um að vera. Við vonum að þið njótið helgarinnar. Með góðum kveðjum, Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Víkingaverkefni í 4. og 5.bekk

Nemendur í 4. og 5. bekk héldu sýningu á víkingaverkefni sem þau hafa verið að vinna undanfarna daga. Þau teiknuðu og skreyttu myndir ásamt því að búa til rafbækur sem tengdist víkingum og lífi þeirra. Aðstandendum þeirra ásamt öðrum nemendum skólans var svo boðið á sýninguna. Flottir krakkar og flott verkefni. Myndir hér
Lesa meira

Reykjaskólaferð 7.bekkjar

Fréttir frá 7. bekk 7. bekkur fór í skólabúðir UMFÍ að Reykjaskóla mánudaginn 16. október og kom til baka fimmtudaginn 19. október. Mikið var um að vera, við fórum á ball, það var módelkeppni, sundlaugarparty, kvöldvaka, Við fórum mikið í GAGA í frjálsa tímanum okkar, en það er leikur sem er spilaður á pönnuvellinum, þar sem maður notar hendurnar til þess að skjóta fótbolta í fætur annarra leikmanna fyrir neðan hné. Við fórum líka á Byggðasafnið, það var gaman og fróðlegt. Í lokinn fengu allir að smakka hákarl sem vildu það. Ingimar Oddson sagði okkur sögu Grettis á skemmtilegan hátt. Við fræddumst um sveitastörf og fengum m.a. að finna lykt af heyi, hænsnaskít, kindaskít og hestaskít. Það var ekki góð likt af þessu en minnsta lyktin var af kindaskítnum. Við sáum líka ull sem búið var að rýja af kind. Við fórum líka í fullt af hópeflisleikjum og leiki þar sem við þurftum að treysta á þann sem var með okkur í hóp. Við kynntumst skemmtilegum krökkum sem voru þarna með okkur. Maturinn var mjög góður og við erum mjög ánægð og glöð með dvölina á Reykjum. Kveðja 7. bekkur
Lesa meira

Nemendaþing

Mánudaginn 20. nóvember boðar stjórnendateymi Höfðaskóla til nemendaþings. Umræðuefni á þinginu er líðan, stundatöflur, samskipti og kennsla. Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember, á heimasíðu umboðsmanns barna kemur eftirfarandi fram: Mikilvægt er að börn og fullorðnir þekki réttindi barna samkvæmt Barnasáttmálanum og menntun barna í mannréttindum þarf að vera samofin öllu skólastarfi. Þó er gott að velja einn dag eða nokkra daga skólaársins sérstaklega til að vinna með og vekja athygli á mannréttindum barna. Afmælisdagur Barnasáttmálans er tilvalinn til þess. Leik-, grunn- og framhaldsskólar, svo og aðrir aðilar sem vinna með börnum, eru hvattir til að helga 20. nóvember fræðslu um mannréttindi barna. Daginn er hægt að nýta til vinnu eða til að kynna afrakstur vinnu sem hefur átt sér stað dagana á undan, eins konar uppskeruhátíð. Skólar eru hvattir til að hafa útfærslu verkefna sem fjölbreyttasta og til að virkja börnin til þátttöku í skipulagningu, hvetja þau til sköpunar og tjáningar. Mikilvægt er að hver skóli taki þátt á eigin forsendum og útfæri vinnuna að aðstæðum á hverjum stað. Þar sem aðstæður eru, gætu jafnvel heilu sveitarfélögin tekið sig saman, unnið saman verkefni og verið með sameiginlega viðburði í tilefni dagsins. Okkur í Höfðaskóla hlakkar til að halda fyrsta nemendaþingið okkar og vonum við að það festist í sessi og verði árlegt í tengslum við þennan dag. Niðurstöður þingsins verða teknar saman og kynntar að þingi loknu.
Lesa meira

Skólastarf í Höfðaskóla fellur niður þriðjudaginn 24. október.

Þriðjudaginn 24. október verður Kvennaverkfall og eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf þann dag. Frá árinu 1975 hafa konur lagt niður störf sín sex sinnum til að mótmæla kynbundnu misrétti. Konur við Höfðaskóla ætla að leggja niður störf þennan dag. Skólastarf í Höfðaskóla fellur því niður þriðjudaginn 24. október.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Vikan í Höfðaskóla gekk ljómandi vel. 7. bekkur fór í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði og skemmtu þau sér mjög vel. Það er mikill þroski sem felst í því að fara í svona ferð, gista annars staðar en heima hjá sér og kynnast nýju fólki. Ferðalagið var mismikil áskorun fyrir krakkana en öll komust þau í gegnum þetta og svei mér þá ef þau stækkuðu ekki um nokkra sentimetra á meðan þau voru í burtu. Valgreinadagur unglingastigs var haldinn hjá okkur í gær, fréttir og myndir frá því má sjá hér. Í næstu viku er Kvennaverkfall þann 24. október og ljóst að það gæti haft áhrif á skólastarfið þann daginn. Við sendum út upplýsingar til foreldra/forráðamanna ef breytingar verða. Þá er alþjóðlegi bangsadagurinn í næstu viku og mögulega verða einhverjir loðboltar á ferðinni um skólann þann daginn. Þeir kennarar sem ætla að taka þátt í deginum með sínum nemendahópum munu senda foreldrum/forráðamönnum upplýsingar um það. Það styttist svo og styttist í vetrarfríið okkar, en áður en það skellur á verða drungalegar verur á sveimi um bæinn á hrekkjavökunni, graskersútskurður með foreldrafélaginu, draugahús í félagsmiðstöðinni og margt fleira - nánar um það síðar. Að lokum minnum við ykkur á að hafa samband ef eitthvað er, við erum hér fyrir ykkur. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira