Fréttir

Framsagnarkeppni Höfðaskóla

Í dag fimmtudaginn 18.mars var framsagnarkeppni Höfðaskóla haldin í Hólaneskirkju. Nemendur 5., 6. og 7. bekkjar tóku þátt og stóðu sig öll með prýði. Á myndinni má sjá þau Þórdísi Kötlu Atladóttur, Sigríði Kristínu Guðmundsdóttur og Loga Hrannar Jóhannsson sem hrepptu þrjú efstu sætin í 7. bekk en undir venjulegum kringumstæðum færu þau áfram í stóru upplestrarkeppnina og myndu keppa fyrir hönd skólans. Á meðfylgjandi myndum má sjá þá nemendur þóttu skara frammúr í lestri í 5. og 6.bekk.
Lesa meira

Danskennsla

Á mánudagsmorgun hófst danskennsla undir stjórn Ingunnar Hallgrímsdóttur frá Dalvík. Krakkarnir munu fá kennslu í klukkustund á dag út þessa viku og eru tímarnir stigskiptir. Allir skemmtu sér konunglega.
Lesa meira

Föstudagskveðja í snjó og kulda

Heil og sæl Vikan í Höfðaskóla varð óvænt stutt í annan endan þar sem aflýsa þurfti skóla í dag vegna veðurs. Veturinn minnti á sig og í gær borðuðum við hádegismatinn í skólanum í stað þess að fara upp í Fellsborg. 9. bekkur átti að vera í samræmdum prófum í vikunni gekk fyrirlögnin ekki alveg nógu vel eins og fólk hefur eflaust séð í fréttum. Til stóð að færa prófin yfir í næstu viku en nú hefur Mennta- og menningamálaráðherra tekið ákvörðun um að aflýsa prófunum. Nemendum 9. bekkjar mun standa til boða að taka aðra útfærslu af samræmdum könnunarprófum og munum við auglýsa fyrirkomulag þeirra þegar það liggur fyrir. Í vikunni fjölgaði um níu í Höfðaskóla þegar ungarnir komu úr eggjunum einn af öðrum. Það er búið að vera skemmtilegt, fróðlegt og spennandi að fylgjast með þessu ferli og krakkarnir hafa haft gaman af. Sjá myndir hér. Í næstu viku verður danskennsla hjá okkur og verður skipulag hennar eftirfarandi: Mánudag-fimmtudag: 10:00-11:00 - yngsta stig, 11:00-12:00 - miðstig og 12:40-13:40 - unglingastig. Föstudagur: 9:20-10:20 - yngsta stig, 10:40-11:40 - miðstig og 11:40-12:40 - unglingastig. Danskennari er Ingunn Hallgrímsdóttir. Að lokum minnum við á drög að skóladagatali, endilega skoðið það hér og sendið inn ábendingar og athugasemdir. Við fengum fyrirspurn hvers vegna væri hægt að hafa val um 175 eða 180 daga og það er vegna þess að ef um 175 daga er að ræða eru nemendur einni kennslustund lengur á viku til þess að vinna upp dagana fimm. Við vonum að þið njótið helgarinnar, sem óvænt varð löng :) Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Ungarnir

Eins og áður hefur verið sagt frá voru hænuegg sett í útungunarvél í Höfðaskóla fyrir nokkru síðan. Eggin voru níu talsins og á dögunum fóru ungarnir að láta sjá sig einn af öðrum og í skrifuðum orðum eru sjö komnir úr eggjum. Tvö egg eru ennþá í vélinni og bindum við vonir við að fá úr þeim unga líka. Skólastarfið er því með líflegra móti þessa dagana og ungir sem aldnir skemmta sér yfir ungviðinu. Nemendu á yngsta stig fóru og kíktu á ungana í dag og fengu að halda á þeim, vakti þetta mikla lukku.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Vikan í Höfðaskóla gekk ljómandi vel. Veðrið lék við okkur og eru nemendur sumir hverjir farnar að koma á hjólum í skólann. Við minnum á að það er skylda að vera með hjálm og að rafmagns hlaupahjólin má aðeins nota til að koma sér til og frá skóla en að öðru leyti skulu þau látin ósnert á skólatíma. Nemendur á miðstigi bíða spenntir eftir ungunum sem eru væntanlegir á næstu dögum. Hér varð uppi fótur og fit í morgun þegar útungunarvélin gaf upp öndina og þurfti að hafa hraðar hendur við að redda nýrri græju sem gekk sem betur fer upp og eggin komust fljótt aftur í hlýju og við vonum að þeim hafi ekki orðið meint af. Nemendur á yngsta stigi fengu ný borð í vikunni, borðin er hægt að raða skemmtilega upp og nýtast þau vel bæði sem einstaklingsborð og hópaborð. Borðin eru kærkomin nýjung þar sem gömlu borðin voru farin að láta vel á sjá. Í næstu viku fer 9. bekkur í samræmd próf mánudag, þriðjudag og miðvikudag og höfum við trú á að þau rúlli þeim upp. Að lokum minnum við enn og aftur á heimasíðuna okkar góðu, þar er að finna allar helstu upplýsingar og fréttir af skólastarfinu ásamt myndum. Við vonum að þið njótið helgarinnar og áframhaldandi blíðviðris. Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Skóladagatal 2021-2022

Skóladagatal fyrir skólaárið 2021-2022 er nú í vinnslu. Hér má sjá drög að tveimur útfærslum. Athugasemdir og ábendingar óskast fyrir 24. mars n.k. á hofdaskoli@hofdaskoli.is
Lesa meira

Föstudagskveðja frá miðstigi

10.bekkur fékk heimsókn frá námsráðgjafa og fulltrúum nemendafélags fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og fengu fræðslu um námsframboð þar. Unglingastig er að vinna út frá Laxdælu að ýmsum skapandi verkefnum bæði á tölvum og á blöðum. Nemendur í valgreininni undirbúningur fyrir ökunám fengu að kynnast sektarreiknivél ríkislögreglustjóra. Vikan hjá miðstigi er búin að vera viðburðarrík. Í samfélagsfræði eru 4. - 7. bekkur að vinna saman verkefni um trúarbrögð heimsins og voru að búa til bænahús út frá hinum ýmsu trúarbrögðum og notuðu eingöngu efnivið úr endurvinnanlegum hlutum. Í leiklist fóru þau út í alls kyns leiki. Nemendur byrjuðu einnig á handritunum sínum en þau ætla að taka þátt í verkefninu Handritin til barnanna á vegum Árnastofnunar. Í ensku voru t.d. búin til borðspil sem allir spiluðu og höfðu gaman af. Á miðvikudaginn vorum við með “Sýnt og sagt frá” en þá koma nemendur með einhverja sniðuga og forvitnilega hluti að heiman til þess að sýna okkur og segja frá þeim. Við fengum að heyra fullt af fróðleik og sjá fullt af skemmtilegum hlutum eins og t.d. hauskúpu af hnísu, bláan ópalpakka, gamla vekjaraklukku, styttu og margt fleira. Myndir af mununum hér. Á yngsta stigi er verið að æfa sögu og ljóðagerð og í samfélagsfræði er verið að lesa söguna Gummi fer að veiða með afa. Eins og áður sagði er 4.bekkur að vinna verkefni með miðstigi. Þau hafa einnig verið að æfa virðingu og vináttu. Miðstig óskar ykkur öllum góðrar helgar og hafið það gott í vetrarfríinu.
Lesa meira

Trúarbragðafræði

Krakkarnir í 4.,5.,6. og 7. bekk eru saman að læra um algengustu trúarbrögð heims og voru að búa til sitt eigið bænahús úr endurvinnanlegu efni ótrúlega skemmtilegt og gaman að sjá ýmiskonar útfærslur frá þeim þegar ímyndunaraflið komst flug.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Sæl og blessuð Vikan í Höfðaskóla var lifandi og skemmtileg. Á mánudaginn var bolludagur og nemendur mættu margir hverjir með bollur í nesti. Á miðvikudag var svo öskudagur og þá máttu sjá hinar ýmsu verur á göngum skólans. Nemendur fóru svo eftir hádegi að syngja og að lokum var öskudagsskemmtun á vegum foreldrafélagsins í íþróttahúsinu sem gekk vel. Á miðvikudag fékk 3. bekkur einnig heimsókn frá Hafsteini Pálssyni slökkvistjóra sem var mjög skemmtilegt. Veðrið hefur heldur betur leikið við okkur og við vonum að svo verði áfram. Sólin hækkar á lofti með hverjum deginum sem líður og brosin breikka í takt við það :) Framundan hjá okkur í næstu viku, er vetrarfrí föstudaginn 26. febrúar og mánudaginn 1. mars. Við vonum að nemendur njóti þess að fá langa helgi og geti slakað á og gert eitthvað skemmtilegt. Hafragrauturinn er á sínum stað alla morgna frá 7:45 og ávaxtastundin einu sinni í viku, á miðvikudögum. Að lokum minnum við ykkur á að vera dugleg að fylgjast með heimasíðunni okkar, þar setjum við reglulega inn fréttir og myndir. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Endurskinsvesti

Kiwanisklúbburinn Drangey á Sauðárkróki afhendi í dag nemendum Höfðaskóla endurskinsvesti. Það var Dagný Rósa Úlfarsdóttir kennari á unglingastigi sem tók á móti vestunum utandyra og með 2ja metra fjarlægðarmörkum svona að mestu leyti. Fyrir hönd Kiwanis þá voru það Steinn Ástvalsson og Ingólfur Örn Guðmundsson sem afhendu vestin og þökkum við þeim kærlega fyrir. Nemendur yngsta stigs klæddust svo vestunum í morgun og sátu fyrir á mynd, eins og verður að vera þá var tekin ein mynd af þeim brosandi og ein grettumynd.
Lesa meira