01.12.2022
Jólatónleikar Tónlistarskóla A.-Hún. fara fram 13. desember kl.16:30 í Hólaneskirkju. ATH. Breytt dagsetning v/ferðar unglingastigs í Skagafjörðinn.
Lesa meira
29.11.2022
Sviðslistahópurinn Hnoðri í norðri heimsótti nemendur á yngsta stigi í morgun með jólasýninguna Ævintýri á aðventunni.
"Ævintýri á aðventunni er nýr gleðilegur jólasöngleikur úr smiðju sviðslistahópsins Hnoðra í norðri sem sniðinn er að börnum á 6-10 ára aldri, en ætti að koma öllum aldurshópum í jólaskap. Lengd verksins er 30 mín.
Í sýningunni skarast skáldskapur, ópera, söngleikur og gamanleikhús á stórskemmtilegan hátt. Höfundur og tónskáld er Þórunn Guðmundsdóttir, en aðalsmerki hennar eru frábærlega fyndnir og hnittnir textar með orðaleikjum auk þess sem tónlist hennar er mjög aðgengileg og yndisleg áheyrnar."
Nánari upplýsingar um verkið er að finna á heimasíðu List fyrir alla.
Við þökkum sviðslistahópnum hjartanlega vel fyrir komuna og einnig styrktaraðilum hópsins fyrir tækifærið.
Lesa meira
25.11.2022
Heil og sæl
Í gærkvöldi var árshátíð skólans haldin í Fellsborg. Nemendur skólans stigu á stokk og léku m.a. persónur úr Hálsaskógi, Bósa ljósár og sveitarstjóra. Eins og kom fram í ræðu formanns nemendafélagsins "Það er ekki sjálfgefið að allt gangi upp við uppsetningu árshátíðar sem þessarar. Undanfarnar vikur hafa nemendur, undir stjórn kennara sinna, samið og æft atriðin sem þið sáuð hér. Hjá mörgum var mikill sigur unninn við það að stíga hér á stokk og skemmta öðrum." Við þökkum öllum þeim sem sáu sér fært að koma hjartanlega fyrir komuna.
Fyrsti desember er handan við hornið með öllum þeim ljósum, skrauti og skemmtilegheitum sem hægt er að ímynda sér. Í næstu viku förum við að huga að jólaróli og byrjum á að taka á móti leikhópnum Hnoðri í norðri sem er með leikriti fyrir yngsta stig sem heitir Ævintýri á aðventunni. Sýningin er styrkt af Tónskáldasjóði, Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði SSNE, Menningarsjóði Akureyrar og Samfélagssjóði Norðurorku, þannig að við eigum þeim og List fyrir alla að þakka að þau geta komið til okkar.
Ég vona að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjur
Guðrún Elsa
Lesa meira
23.11.2022
Þeir nemendur miðstigi sem eru í myndmennt fóru í Nes listamiðstöð í vikunni og fengu fræðslu um Collage art eða hvernig hægt er að gera listaverk úr klippimyndum. Þau fengu allskyns efni til að vinna með og bjuggu til sín eigin "collage" listaverk sem komu skemmtilega út, þrátt fyrir að hafa stuttan tíma.
Krakkarnir í 2. og 3.bekk lærðu að búa til sólmyndir ( cyanotype ) í Nes listamiðstöð í vikunni og skemmtu sér konunglega.
Það er ómetanlegt að vera í góðri samvinnu við menningarstarfsemi í nærumhverfinu.
Myndirnar verða til sýnis á opnu húsi í Nes sem er í dag frá kl. 16:00 -18:00. við hvetjum alla til að mæta og berja verkin augum.
Lesa meira
22.11.2022
Árshátið Höfðaskóla verður haldin í Fellsborg 24. nóvember kl. 18:00.
Fjölbreytt dagskrá.
Skólafélagið Rán verður með diskótek og sjoppu að dagskrá lokinni.
Lesa meira
18.11.2022
Sæl og blessuð kæru vinir!
Tíminn flýgur áfram og enn á ný er kominn föstudagur, þá er ekki úr vegi að setjast niður og líta yfir vikuna sem nú er að renna sitt skeið og fara að spá í þeirri næstu.
Árshátíðarundirbúningur er kominn á fullt skrið og atriði nemenda er smá saman að verða að flottum sýningaratriðum og við hlökkum til að leyfa ykkur að sjá afrakstur þessarar vinnu í næstu viku.
Árshátíð Höfðaskóla fer fram fimmtudaginn 24. nóvember í Fellsborg. Að morgni árshátíðardags mæta nemendur í Fellsborg kl. 9:00 á generalprufu. Þann dag verður ekki hafragrautur í boði og þau mega koma með sparinesti með sér ásamt drykk. Það er ekki leyfilegt að koma með sælgæti, gos eða orkudrykki.
Árshátíðin hefst svo klukkan 18:00 en allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag hennar verða sendar út eftir helgi.
Unglingastigið fékk góða gesti í heimsókn í vikunni. Geðlestin kom og fræddi um mikilvægi þess að huga að geðrækt og minntu á að við förum til læknis ef við erum veik hvort sem það er andlega eða líkamlega, bæði er jafn mikilvægt. Með Geðlestinni var góður gestur, tónlistarmaðurinn Flóni og var hann með "mini" tónleika fyrir krakkana. Þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.
Á þriðjudaginn fara nemendur 8.-10.bekk á Starfamessu á Sauðárkróki. Á Starfamessunni verða kynntar um 30 náms- og starfsleiðir í iðn-, tækni- og verkgreinum, með áherslu á þau tækifæri sem standa nemendum til boða hér á Norðurlandi vestra. Hugmyndin er að nemendur fái tækifæri til að hitta bæði forsvarsmenn starfsgreinanna sem og aðstandendur námsins á bakvið þær greinar. Þannig öðlist þeir innsýn í ferlið allt frá námi og inni í fyrirtækin þar sem störfin eru unnin.
Ég vona að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjur
Guðrún Elsa
Lesa meira
10.11.2022
Heil og sæl
Framundan er vetrarfrí á morgun föstudag 11.nóv, mánudaginn 14.nóv og þriðjudaginn 15.nóv, næsti kennsludagur er miðvikudagurinn 16. nóv.
Geðlestin heimsækir nemendur á unglingastigi nk.miðvikudag og heldur fyrirlestur kl. 13:20 sem tekur ca 50 mínútur.
Á döfinni er svo árshátíðin okkar sem er áætluð 24.nóvember og er allt undirlagt í þeim undirbúningi.
Við minnum á mikilvægi þess að láta vita ef nemendur forfallast, hægt er að hafa samband við skólann með því að hringja í s.4522800, senda tölvupóst á umsjónarkennara eða skólastjóra ásamt því að tilkynna gegnum heimasíðuna.
Eins og tíðin hefur verið undandarið er myrkrið allsráðandi á morgnana og því viljum við minna á endurskinsmerkin.
Til gamans má geta að einungis sjö vikur eru eftir af árinu.
Við vonum að þið njótið vetrarfrísins.
Með góðum kveðjum
Starfsfólk Höfðaskóla
Lesa meira
07.11.2022
Unglingastigs nemendur sem voru í myndmenntavali eyddu síðustu tímunum í Nes listamiðstöð. Þar lærðu krakkarnir að búa til sitt eigið 'screen printing' frá grunni. Þetta var mjög áhugavert verkefni og krakkarnir fengu að kynnast því hve mikil vinna og bras felst oft í gerð listaverka. Útkoman varð allskonar og þau fögnuðu bæði því sem misheppnaðist og því sem lukkaðist.
Þau prófuðu að prenta á bæði pappír og boli.
Nemendurnir hafa staðið sig vel í haust og verkefnin sem þau unnu voru meðal annars:
verkefni tengd listasögu, úti teikningar, æfðu sig með Posca penna, horfðu á þátt um Ólaf Elíasson listamann, unnu öll saman að einu stóru halloween þema listaverki og sitthvað fleira.
Það er greinilegt að skólinn okkar á ungt og upprennandi listafólk!
Lesa meira
04.11.2022
Heil og sæl
Vikan í Höfðaskóla gekk vel og nemendur unnu við ýmis verkefni. Veðrið hefur verið gott og hafa nemendur og starfsfólk í frístund notið þess að vera úti.
Við erum farin að huga að árshátíð sem verður með hefðbundnu sniði 24.nóv og verður nánari útfærsla á henni kynnt þegar skipulag liggur fyrir.
Vetrarfrí verður föstudaginn 11. nóvember, mánudaginn 14.nóvember og þriðjudaginn 15.nóvember og vonum við að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir þessa daga.
Við minnum á mikilvægi þess að hafa ætíð í huga að jákvæður skólabragur er sameiginleg ábyrgð nemenda, foreldra/forráðamanna og starfsfólks. Nemendur, foreldrar og starfsfólk sýna hvert öðru kurteisi og virðingu.
Annars gengur lífið sinn vanagang hjá okkur og við hvetjum ykkur áfram til að vera dugleg að skoða heimasíðuna okkar, þar setjum við reglulega inn fréttir og myndir.
Við vonum að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjum
Starfsfólk Höfðaskóla
Lesa meira
01.11.2022
Nemendur í heimilisfræði vali á unglingstigi útbjuggu tvenns konar kássu með það að markimiði að læra hvernig hægt er að drýgja matarafganga á einfaldan máta. Annars vegar var útbúin saltkjötskássa úr hrossakjöt og hins vegar kjötkássa úr ósöltuðu lambakjöti.
Nemendur suðu með þessu kartöflur og egg, gerðu jafning og borðuðu.
Lesa meira