Fréttir

Fjör í frístund

Þeir nemendur sem mæta í frístund eftir skóla eru búin að vera í óða önn að setja upp verslun. Í áframhaldi af búðarleiknum sem þau hafa verið að gera síðustu tvær vikur fengu þau trölla deig í gær til að búa til mat og bakkelsi sem verður svo sett í ofn og þau munu svo mála. Einnig fékk frístund gefins gömul Júlíu blöð sem krakkarnir eru búin að klippa til, breyta og bæta. Hér er svo hægt að sjá myndir.
Lesa meira

Föstudagskveðja skólastjórnenda

Heil og sæl Vikan í Höfðaskóla gekk vel. Covid-19 veiran er farin aftur á flug en við höfum ekki þurft að breyta hefðbundnu skólastarfi hjá okkur. Aftur á móti mælumst við til þess að foreldrar, forráðamenn eða aðrir utanaðkomandi aðilar komi ekki að nauðsynjalausu inn í skólann. Hægt er að hringja í síma 4522800 til að fá lausn mála sinna :) Í gær tóku skólastjórar í Austur og Vestur Húnavatnssýslu sameiginlega ákvörðun um að aflýsa Reykjaskólaferð 7. bekkjar sem átti að vera 19.-23. október sem og valgreinahelgi sem stóð til að unglingarnir myndu sækja inn á Blönduós 16. og 17. október. Við þurfum að vera skynsöm, varast blöndun hópa á milli skóla og reyna þannig að halda veirunni áfram í burtu frá okkar svæði. Næstu vikur munu ákvarðast að hluta af því hvernig veiran hagar sér og hvernig samkomu- og fjöldatakmörkunum verður háttað. Við sníðum okkur stakk eftir vexti :) Að lokum minnum við á hafragrautinn góða sem er í boði alla morgna frá 7:45 og ávaxtastundina á miðvikudögum. Við vonum að þið njótið helgarinnar og munum, við erum öll almannavarnir. Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Nemendafélag Höfðaskóla

Í 10 gr. grunnskólalaga nr. 91/2008 kemur fram að við grunnskóla skuli starfa nemendafélag og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess. Í dag var Nemendafélag Höfðaskóla stofnað og kosið í stjórn þess. Niðurstöðurnar voru svohljóðandi: Úr 8. bekk eru þær Elísa Bríet Björnsdóttir og Steinunn Kristín Valtýsdóttir í stjórn og Ásgeir Sigmar Björnsson varamaður Úr 9. bekk eru þau Óðinn Örn Gunnarsson og Stefanía Hrund Stefánsdóttir í stjórn og Ísabella Líf Tryggvadóttir varamaður Úr 10. bekk eru þau Gabríel Goði Tryggvason og Karen Líf Sigurbjargardóttir í stjórn og Sonja Rut Jónþórsdóttir varamaður. Formaður nemendaráðs verður kosinn á fyrsta fundi félagsins en hann mun koma úr röðum 10. bekkinga. Í stjórninni sitja einnig skólastjórnendur, Sara Diljá og Guðrún Elsa. Fyrsti fundur félagsins er fyrirhugaður síðar í mánuðinum.
Lesa meira

Aðalfundi foreldrafélagsins frestað

Aðalfundi foreldrafélagsins frestað Vegna hertra aðgerða þríeykisins verðum við að fresta fundarhöldum til 26.októbér til að byrja með. Við munum minna á fundinn þegar nær dregur Bestu kveðjur Stjórnin
Lesa meira

Föstudagskveðja

Sæl og blessuð Vikan leið hratt í Höfðaskóla og það var ýmislegt um að vera. Unglingastig fékk Bjössa rafvirkja í heimsókn og hann kenndi nemendum að búa til millistykki, lóða og nýta sítrónur og kartöflur sem orkugjafa. Nemendur í 4.bekk þreyttu samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði. Sú hefð hefur skapast hér í Höfðaskóla að nemendur fá kaffi í boði skólans að prófi loknu og í þetta sinn var boðið uppá pizzastykki, ostaslaufur og epla/appelsínusafa. Kennarar eru í óða önn að ljúka við að færa inn niðurstöður úr Lesfimi og verða þær sendar heim með nemendum í næstu viku. Niðurstöður verða einnig aðgengilegar á Mentor. Annars er lítið að frétta úr skólastarfinu um þessar mundir, lífið gengur sinn vanagang og allir hressir og kátir. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Guðrún Elsa og Sara Diljá
Lesa meira

Föstudagskveðja frá unglingastigi

Þessi vika hefur verið viðburðarrík og nokkuð köld veðurfarslega. Nemendur unglingastigs hafa unnið að verkefnum tengdum rafmagsfræði, vindmyllum og orkuöflun og verður áframhald á þeirri vinnu í næstu viku. Nemendur miðstigs hafa meðal annars verið að vinna að tímalínu varðandi tækniþróun og þá hafa þeir einnig verið að læra um almenn brot og dönsku. Fimmtudag og föstudag þreyttu svo nemendur 7. bekkjar samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði. Nemendur á yngsta stigi hefur verið að læra ýmislegt um lífverur og hafa unnið meðal annars hugtakakort varðandi þær. Þá er verið að rækta linsubauna- og melónuplöntur á yngsta stigi. Nemendur unglingastigs er afar þakklátt fyrir að lúsin er ekki mætt þetta haustið og vilja því minna alla á mikilvægi þess að kemba reglulega. Góða helgi
Lesa meira

Hestaval

Nemendur á unglingastigi sem eru í hestavali fengu alíslenskt veður til útreiða miðvikudaginn 23.sept. Hinur ungu knapar létu það nú ekki á sig fá og brostu móti sól og snjó.
Lesa meira

Morgunstund gefur gull í mund

Í Höfðaskóla stendur nemendum og starfsfólki hafragrautur til boða alla morgna frá kl. 7:45. Það er gott að setjast niður og eiga notalega stund saman á morgnanna og hefur grauturinn verið vel sóttur.
Lesa meira

Breakout EDU

Skólinn fékk styrk frá Forriturum framtíðarinnar til að kaupa smáhluti til forritunarkennslu. Einn af þessum hlutum sem keyptir voru kallast Breakout EDU og er um að ræða kassa sem hægt er að læsa og nokkra lása, bæði talna og bókstafa. Nemendur þurfa síðan að leyta að vísbendingum til að geta leyst þrautirnar og opnað lásana. Breakout í kennslu er ekki ósvipað því sem kallast "escape room" og er vinsæl afþreying víða um heim. Breakout er frábær leið til að vinna með mikilvæga lykilhæfni eins og samvinnu, lausnaleit, gagnýrna hugsun og samskipti. Breakout hentar öllum aldurshópum og er hægt að nota með hvaða námsefni sem er. Nemendur á miðstigi voru svo heppnir að fá að vígja Breakout"ið" og var ansi mikið spjallað og pælt meðan verið var að leita lausna á hinum ýmsu þrautum og sigurhrópin sem bárust um skólann þegar tókst að skrá inn rétt og losa lás.
Lesa meira

Aðalfundur foreldrafélags Höfðaskóla

Fundarboð Foreldrafélag Höfðaskóla, boðar til aðalfundar þriðjudaginn 6. október kl. 20:00 á kaffistofu skólans. Dagskrá fundar: - Skýrsla stjórnar og reikningar - Kosning stjórnar - Önnur mál Sýnum lit og fjölmennum. Stuðningur foreldra við skólastarfið er dýrmætur og til góðs fyrir alla nemendur skólans. Minnum á sóttvarnir. Ath. dagsetning getur breyst vegna Covid takmarkana. Veitingar í boði félagsins. Stjórnin
Lesa meira