25.02.2021
10.bekkur fékk heimsókn frá námsráðgjafa og fulltrúum nemendafélags fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og fengu fræðslu um námsframboð þar.
Unglingastig er að vinna út frá Laxdælu að ýmsum skapandi verkefnum bæði á tölvum og á blöðum. Nemendur í valgreininni undirbúningur fyrir ökunám fengu að kynnast sektarreiknivél ríkislögreglustjóra.
Vikan hjá miðstigi er búin að vera viðburðarrík. Í samfélagsfræði eru 4. - 7. bekkur að vinna saman verkefni um trúarbrögð heimsins og voru að búa til bænahús út frá hinum ýmsu trúarbrögðum og notuðu eingöngu efnivið úr endurvinnanlegum hlutum. Í leiklist fóru þau út í alls kyns leiki. Nemendur byrjuðu einnig á handritunum sínum en þau ætla að taka þátt í verkefninu Handritin til barnanna á vegum Árnastofnunar. Í ensku voru t.d. búin til borðspil sem allir spiluðu og höfðu gaman af. Á miðvikudaginn vorum við með “Sýnt og sagt frá” en þá koma nemendur með einhverja sniðuga og forvitnilega hluti að heiman til þess að sýna okkur og segja frá þeim. Við fengum að heyra fullt af fróðleik og sjá fullt af skemmtilegum hlutum eins og t.d. hauskúpu af hnísu, bláan ópalpakka, gamla vekjaraklukku, styttu og margt fleira. Myndir af mununum hér.
Á yngsta stigi er verið að æfa sögu og ljóðagerð og í samfélagsfræði er verið að lesa söguna Gummi fer að veiða með afa. Eins og áður sagði er 4.bekkur að vinna verkefni með miðstigi. Þau hafa einnig verið að æfa virðingu og vináttu.
Miðstig óskar ykkur öllum góðrar helgar og hafið það gott í vetrarfríinu.
Lesa meira
23.02.2021
Krakkarnir í 4.,5.,6. og 7. bekk eru saman að læra um algengustu trúarbrögð heims og voru að búa til sitt eigið bænahús úr endurvinnanlegu efni ótrúlega skemmtilegt og gaman að sjá ýmiskonar útfærslur frá þeim þegar ímyndunaraflið komst flug.
Lesa meira
19.02.2021
Sæl og blessuð
Vikan í Höfðaskóla var lifandi og skemmtileg. Á mánudaginn var bolludagur og nemendur mættu margir hverjir með bollur í nesti. Á miðvikudag var svo öskudagur og þá máttu sjá hinar ýmsu verur á göngum skólans. Nemendur fóru svo eftir hádegi að syngja og að lokum var öskudagsskemmtun á vegum foreldrafélagsins í íþróttahúsinu sem gekk vel. Á miðvikudag fékk 3. bekkur einnig heimsókn frá Hafsteini Pálssyni slökkvistjóra sem var mjög skemmtilegt.
Veðrið hefur heldur betur leikið við okkur og við vonum að svo verði áfram. Sólin hækkar á lofti með hverjum deginum sem líður og brosin breikka í takt við það :)
Framundan hjá okkur í næstu viku, er vetrarfrí föstudaginn 26. febrúar og mánudaginn 1. mars. Við vonum að nemendur njóti þess að fá langa helgi og geti slakað á og gert eitthvað skemmtilegt.
Hafragrauturinn er á sínum stað alla morgna frá 7:45 og ávaxtastundin einu sinni í viku, á miðvikudögum.
Að lokum minnum við ykkur á að vera dugleg að fylgjast með heimasíðunni okkar, þar setjum við reglulega inn fréttir og myndir.
Við vonum að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjum
Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira
18.02.2021
Kiwanisklúbburinn Drangey á Sauðárkróki afhendi í dag nemendum Höfðaskóla endurskinsvesti. Það var Dagný Rósa Úlfarsdóttir kennari á unglingastigi sem tók á móti vestunum utandyra og með 2ja metra fjarlægðarmörkum svona að mestu leyti. Fyrir hönd Kiwanis þá voru það Steinn Ástvalsson og Ingólfur Örn Guðmundsson sem afhendu vestin og þökkum við þeim kærlega fyrir.
Nemendur yngsta stigs klæddust svo vestunum í morgun og sátu fyrir á mynd, eins og verður að vera þá var tekin ein mynd af þeim brosandi og ein grettumynd.
Lesa meira
18.02.2021
Landssamband slökkviliðsmanna stóð fyrir eldvarnargetraun á meðal þriðjubekkinga á landinu öllu. Foreldrar fengu upplýsingar heim í nóvember þar sem þeir voru hvattir til þess að taka þátt með börnum sínum. Dregið var úr réttum svörum á landsvísu og á meðal sigurvegara á landsvísu var Arnar Gísli nemandi í 3.bekk Höfðaskóla.
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri á Skagaströnd kom í heimsókn og veitti Arnari Gísla viðurkenningu og gjafabréf frá Spilavinum ásamt því að færa öllum nemendum 3.bekkar ýmsar skemmtilegar gjafir t.d. endurskinsmerki og vasaljós. Þökkum við honum kærlega fyrir komuna.
Lesa meira
18.02.2021
Við Höfðaskóla eru lausar kennarastöður fyrir næsta skólaár. Um getur verið að ræða almenna kennslu.
Nánari upplýsingar um störfin veitir skólastjóri, Sara Diljá Hjálmarsdóttir í síma 452-2800
Lesa meira
17.02.2021
Allskonar kynlegir kvistir mættu í skólann í morgun, hugmyndaríki, gleði og glaumur einkenndu morguninn hér í skólanum.
Lesa meira
17.02.2021
Þann 5.febrúar sl. hófust þættir á RÚV sem bera heitið HM 30 og er sýndur einn þáttur vikulega. Í þáttunum fara tveir þáttastjórnendur yfir heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og vill svo skemmtilega til að annar þeirra er nemandi Höfðaskóla, Steinunn Kristín Valtýsdóttir. Það verður spennandi að fylgjast með þessum fróðlegu þáttum.
Lesa meira
17.02.2021
Nemendur í 4.-7. bekk eru að vinna hörðum höndum að því að fjölga nemendum skólans, eftir ca 18-20 daga ættu að bætast í hópinn 7 litlir hænuungar. Krakkarnir tengja þetta að sjálfsögðu við hæfniviðmið Aðalnámskrár grunnskóla og vinna skemmtilega verkefnavinnu tengda ferlinu frá eggi að unga.
Lesa meira
12.02.2021
Sæl kæru skólavinir
Vikan í Höfðaskóla gekk ljómandi vel. Lífið gengur sinn vanagang hjá okkur og framundan er margt spennandi.
Á mánudaginn er bolludagur og þá mega nemendur að sjálfsögðu koma með bollur í nesti. Á miðvikudaginn er svo öskudagur og þá verður ýmislegt um að vera. Nemendum á yngsta stigi stendur til boða að fara með frístund að syngja og safna sælgæti eða öðrum varningi. Við höfum óskað eftir því að fyrirtæki sem eru tilbúin til að taka á móti krökkunum láti okkur vita og munum við svo láta nemendur á mið- og unglingastigi vita hvaða fyrirtæki það eru.
Foreldrafélag Höfðaskóla mun svo standa fyrir öskudagsskemmtun fyrir nemendur sem verður nánar auglýst þegar skipulag liggur fyrir.
Á starfsmannafundi í vikunni voru ýmsar ákvarðanir teknar:
Danskennsla verður vikuna 15.-19. mars. Kennari verður Ingunn M. Hallgrímsdóttir. Öll stig fara í 60 mínútna danstíma á dag.
List- og verkgreinavika verður á unglingastigi 22.-26. mars og munu foreldrar/forráðamenn nemenda þar fá upplýsingar þegar nær dregur.
Miðvikudaginn 7. apríl og fimmtudaginn 8. apríl munu nemendur í 9. og 10. bekk fara á námskeið í skyndihjálp og endurlífgun og sömuleiðis mun starfsfólk fara á námskeið. Karl Lúðvíksson sér um skipulag þess og kennslu.
Árshátíðin verður haldin föstudaginn 9. apríl. Nánari útfærsla á henni verður auglýst þegar nær dregur.
Semsagt, margt spennandi og skemmtilegt framundan :)
Stöndum saman um að efla góð samskipti og samvinnu og gera þannig skólasamfélagið okkar enn betra.
Lesa meira